Hvað er eiginlega með þessar blessuðu lægðir sem eru alltaf að ganga hérna yfir landið????
Maður getur ekki orðið farið út úr húsi dag eftir dag vegna veðurs
en svona er þetta víst að búa hérna á þessu blessaða Fróni
En versta við þetta veður eru allar skemmdirnar sem verða á eignum fólks vegna þess að hlutir eru fjúkandi hingað og þangað....er ekki alveg að fatta það hvers vegna fólk er ekki búið að taka inn allt lauslegt sem getur fokið eða þá allavegana bundið það niður
.... þetta er nú þriðja lægðin sem gengur yfir á nokkrum dögum sem er að gera allt vitlaust...fljúgandi heitapottar, strætóskýli og fleira skemmtilegt
þannig að fólk ætti nú að vita við hverju er að búast.... en það hlítur þá að koma að því að það verður ekkert meira til þess að fara á flakk því að það er allt búið að vera á fleygiferð
Ég var að lesa það á vísir.is að fólk í Keflavík hafi lent í því að fá fljúgandi kött á stofugluggann hjá sér
greyið kisi litli ekki hefði ég nú viljað vera hann
....hef fengið flugferð í brjáluðu veðri og langar helst ekkert að upplifa það aftur
Spruning hvort að kisi hafi orðið svona eftir flugferðina???
Erum búin að vera að bíða eftir að komast til Eyja síðan í gær en áttum pantað flug seinnipartinn en það var auðvitað aflýst fluginu þegar við vorum komin upp á flugvöll
síðan er veðrið í dag svo brjálað að það er auðvitað ekki flogið.....en þá er bara að krossleggja fingurnar um að við komumst á morgun
ég ætla allavegana ekki með Herjólfi eins og veðrið er búið að vera seinustu daga
en vona að við komumst á morgun því að Egill er að útskrifast og má nú ekki vanta aðal liðið í veisluna
og það væri nú geggjað að komast í dekur hjá tengdó og hafa það gott
Vildi bara kasta smá kveðjum hingað inn og vona að ég komist nú til Eyja á morgun..... en segi bara
Gangið hægt um gleðinnar dyr og verið góð við hvort annað
og passið ykkur á fljúgandi gasgrillum og heitapottum
Góða helgi
Kv Íris